...bloggað úr tveim áttum...

Sagt er að hundurinn sé besti vinur mannsins!?!?!

08.02.2008 12:23:55 / lattikjatti

bíbíogblaka bjarney er komin með myspace..www.myspace.com/bjarneyb - addið kvikindinu;)

þessi síða er nú allveg HANDónýt..ég nennessu ekki..bliii

 

MAAAAARIA 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 18:22:07 / lattikjatti

Neiii..ég nenni ekki að blogga!!

Að blogga eða ekki blogga? Þetta er svona afþreyging sem ég stelst í þegar ég hef ekkert betra að gera en að læra, sem er yndislegt. :$

Eníveis, hér á Egilsstöðum er allt frosið og það er ógeðslega kalt úti og í hvert sinn sem ég fer útí bíl og tek um stýrið er ég hrædd um að ég frjósi við það.

Um helgar er kíkt á pepes eða fundið eitthvað annað að gera. Pepes varð óvænt fyrir valinu núna á laugardagskvöldið þar sem ég var búin að eyða meirihluta kvöldsins í að gera skilaverkefni fyrir íslensku, þá var ég mjög ánægð þegar við ákváðum að vera fersk og skella okkur á Pepes. Þar mættum við KR - liðinu í heild sinni, (nei ekki knattspyrnufélagi Reyðarfjarðar) heldur Reykjavíkur. Þeir voru greinilega sáttir eftir 3-3 jafntefli við Fjarðabyggð og voru hinir hressustu!

Punktar frá kvöldinu :

  • Ég, Maríanna og Siggi ræddum mikið við Pétur Marteins,fyrrverandi atvinnumann í Svíþjóð.
  • Hann elskar Gísla Martein
  • Ekki ég..
  • Samkvæmt honum er Maríanna eins og leikkona í West wing og ég eins og stelpa í sænskum sjónvarpsþáttum
  • Maríanna hringdi í Gísla Martein.. Hún er heppin að þekkja Pétur! 8)
  • Maríanna eignaðist frænda í KR þetta kvöld
  • Eftirparty á Hótel Héraði
  • Næturvörðurinn ekki sáttur...,,Helvitis píkurnar ykkar"
  • KR-ingum (eða allavega sumum) finnst greinilega gott að fara í sturtu á fylleríum og hafa meira gaman þar heldur en í partyinu sjálfu.
  • Fórum inná hótelherbergi til Kristjáns Finnboga og ræddum málin
  • Helvíti skemmtilegt kvöld..hver segir svo að það sé ekki hægt að skemmta sér á austurlandi, iss..
En yfir í annað
Hinn meðlimur þessarar síðu, sem kýs oftast að blogga ferðablogg, á 19 ára afmæli í dag. Já kæru vinir, Bjarney, bibba, bjabba, ibba gogg eða hvað sem þið viljið kalla hana, suðursveitungur og Hornfirðingur sem vill samt helst láta kenna sig við Kópavog er einu ári nær tvítuginum.
Ég er búin að þekkja Bjarney í þónokkuð mörg ár og henni þykir ekki vænna um neitt annað en kindurnar sínar, hún er nett klikkuð, hlustar mikið á tónlist þá aðallega techno eða hiphop. Eftir 10 ár verður hún Bjarney flugfreyja með kind í bandi, ég sver það! Annars til hamingju með afmælið Bjarney mín:*
Ég er hinsvegar annars kanski að koma til Reykjavíkur um helgina krakkar mínir, verið við öllu búin, ég og bjarney ætlum að skella okkur á Benny Benassi og gera eitthvað skemmtilegt ef ég læt verða úr þessu.
Nenni ekki að láta myndir með þessari afmælisfærslu, ætla að halda áfram að læra um nýrómantíkina, próf a morgun:frown:
Hilsen

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 01:40:02 / lattikjatti

Nýtt ár

Já langt siðan ég hef eitthvað skrifað hér inná þessa síðu. 

En held að flestir viti að ég er komin heim frá Danmörku og kom þann 15.des og keyrði heim á Höfn með Guðrún Femu þann 16.. Get ekki annað sagt en að jólunum hafi verið eytt í góðu yfirlæti á Hornafirði í faðmi fjölskyldu og vina. Annar í jólum partyið okkar var ótrúlega skemmtilegt og Jóhann Helgi var svo góður að hýsa þennan annars skemmtilega árgang, áður en haldið var á ball með Sixties og seinna á ballið á Víkina. Inná milli var rúntað, æft, spilað æfingaleik sem við unnum 3-1. Svo voru það áramótin og þar var fyrirparty hjá Ólafi og síðar ball með Parket á Vikinni, ég skemmti mér af sjálfsögðu konunglega eins og mér einni er lagið.

Fór svo hingað í Egilsstaði 2. janúar og skólinn byrjaði 8. jan. Get ekki sagt að ég sé eitthvað svakalega spennt fyrir þessum skóla en þetta hefst nú allt saman. Erum búin að taka tvær góðar helgar í skemmtun hér, eitt skiptið skelltum við okkur á Djúpavog, það endaði skrautlega í einhverjum kerjum útí sveit þar sem allir voru naktir, nema ég! Ég var edrú :) Og svo núna um helgina var ég með smá hitting hér fyrir nokkrar stelpur og síðan var skellt sér á Pepes í mikla gúrkustemmingu eins og mætti að orði komast;) Ég nenni ekki að setja inn neinar myndir frá því, en ég ætla að reyna að vera dugleg að taka myndir nuna, Páll Óskar svo að spila hér 8.feb á Barkanum, nokkur þorrablót framundan og einhver böll svo það er nóg að gera, ætla svo að skella mér til Reykjavikur þarna einhverntiman i millitíðinni.

 

P.S - ég er að faraá Roskilde í sumar, ýkt spennt:)  


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 23:17:51 / lattikjatti

Heimsborgari bloggar frá Köben

Jæja, þá er ég komin til Köben, kom í gær um hálf 7, tók þá strætóinn heim til Valdísar og Loga með Valdísi og við elduðum takkó og svo fór ég að sofa seint um síðir.

Vaknaði ekki snemma i dag, fór á strikið um hálf 3 leitið og svo þegar við vorum buin að þræða það þá var kíkt í Fields og siðan heim, komnar heim um hálf 8 leitið, nu sit ég hér og blogga, er með hausverk..kem heim nuna eftir 2 daga á að lenda á ísl kl hálf 4 á ísl tíma á laugardaginn og keyri svo með guðrún femu á Höfn snemma á sunnudeginum.

 Það var ekki það skemmtilegasta í heimi að kveðja IHÅ en ...eitt sinn verða allir menn að kveðja..hehe, neinei..

En orðin þreytt i puttunum og ennþá meira illt i höfðinu, vi ses om to dage!

 hilsen frá köbenhavn


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 16:19:31 / lattikjatti

SKÅL

 

--- ég verð svona kát þegar ég kem heim

 

 

sjáumst;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 10:29:11 / lattikjatti

FERÐABLOGG

Jæja, komin heim frá Spáni, nánar tiltekið Lanarote, eyju sem er 100 km frá ströndum Afríku. Eníveis, föstudaginn 23. nóv vöknuðu um 80 ferskir nemendur úr IHÅ kl 3 um nótt, fengum nestið okkar og svo lá leiðin til Billund, það tók okkur 1 og hálfan tíma og svo 5 klst í flug, get ekki sagt að mér hafi verið skemmt. En jæja, við lentum og það var fínasta veður og sól og hitinn ágætlega vel yfir 20 gráðunum.

Hótelið okkar, Club La Santa, sem er staðsett um 3 km fyrir utan La Santa bæinn var óóóótrúlega flott.

 Þarna var fótboltavöllur með fínni hlaupabraut, tennisvellir, ólympísk 50 m laug, vejuleg laug með rosa fínu stökkbretti sem var mikið notað, strandblak vellir, þarna var hægt að fara að windsurfa, kafa og wavesurfa og bara nefndu það. 3 veitingastaðir á hótelinu, alltaf eitthvað skemmtilegt um að vera á kvöldin, ógeðslega flott rækt og á daginn voru tímar úti í sólinni eins og t.d. body step og Thai Bo og svona allskonar skemmtilegt. Og til að sýna fram á það hversu skemmtilegur staður þetta er fyrir fólk sem hefur gaman af hreyfingu þá var þarna fólk að koma 19. árið sitt í röð.

 Ég var skráð í fótbolta, þannig fyrripart dagsins var ég yfirleitt á æfingu frá kl 9-11 og síðan var bara afslöppun frá 11-2 eða 4, þá fór maður yfirleitt annaðhvort í strandblakið eða einhverja svona skemmtilega tíma, skellti mér einmitt í hip-hop tima og það var rosa gaman. Tók síðan þátt í svona tvíatlóni, þar sem ég synti 400m og hljóp svo 6 km strax á eftir, það var bara fínt.

 Veðrið þarna var eiginlega bara gott allan tímann og náði maður að tana smá 0

 Síðan var náttúrulega eitthvað um skemmtun þarna eins og gengur og gerist og þá var farið á Green team show þar sem krakkar sem koma frá Bretlandi og Danmörku eru að vinna á hótelinu og búa þarna (mjög sniðugt og örugglega mjög gaman) og eru að hjálpa til og kenna íþróttir og svona voru með eitthver skemmtiatriði, eftir það var haldið í einhver herbergisparty og síðan á diskó, sem var bara gaman og eftir það ákváðum við nokkur galvösk að skella okkur í þessa ÍS jökulköldu laug um nóttina, ég hoppaði og jesús minn, hélt ég væri að fara að drukkna, Fanney hoppaði nú ekki en henni var bara hent útí í öllum fötunum! Bara gaman. En já vikan var eiginlega öll eins, sólböð, íþróttir og skemmtilegheit. Á fimmtudagskvöldið sem var seinastakvöldið var svo búið að plana voða fínt strandparty fyrir okkur þar sem var eldað niðrá strönd, sangría og drykkir og leikir og svo var sungið og djammað og einhverjir skelltu sér á diskó en ég, sem var farið að svíða í augun af þreytu ákvað nu bara að fara að sofa þar sem að það var ræs kl 7 morguninn eftir og lagt af stað á flugvöllinn kl 9. Man ekkert hvenar vélin fór í loftið en við vorum lent korter í 7 á dönskum tíma og komin hingað í skólann kl hálf 9 eftir snillllldar ferð. – Gerðist náttúrulega margt og mikið meir í þessari ferð, fullt af gullmolum og gullkornum o.s.frv. en þau bíða bara þangað til eftir 2 vikur þvi þá get ég bara sagt ykkur allt í eigin persónu!! Snilld, á samt eftir að sakna IHÅ og allra hér brjálæðislega.

 

E.S – voru teknar einhverjar myndir, Stefanía er með þær allar þannig ég reyni að henda einhverjum af þeim hér inn við tækifæri.

 

Nóg í bili - María


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 13:33:48 / lattikjatti

já okey....

 

já góðan dag,

það eru ár og aldir síðan ég bloggaði hérna síðast,,,

ætla hafa þetta stutt... bara segja ykkur að ég er á leið til þýskalands,, ;)flyg til Frankfurt og fer þaðan til Köln, fer ekki nú reyndar ekki ein, því ég ætla að taka Þóru með mér.. vorum að spá í að fara til Brussel í Belgíu og sonna gaman gaman,,, veit samt voða lítið hvað hægt er að gera þar... en ég er hætt að bulla... kem heim á mánudaginn.... :P

 Adios

Bjarney


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 12:31:26 / lattikjatti

48 dagar í heimkomu

Jæja, aðeins 48 dagar þangað til ég kem heim og 26 dagar þangað til ég fer til Spánar og verð þar í viku!

 

Og verð nú að segja að mér er mikið farið að hlakka til! Koma heim til kalda Íslands (þegar ég verð buin að liggja á sólarströnd í viku), hitta vinina og fjölskylduna og byrja strax í jólaundirbúningnum og fá íslenskan mat! Get ekki beðið:)

  • Hlakka til að koma heim á Hornafjörð og fara í heimsókn til Óskar, borða allt marylandkexið hennar og drekka kókómjólkina frá pabba hennar:haha:
  • Hlakka til að fá pabba mat og mömmu mat
  • Hlakka til að hitta stelpurnar
  • Og að sjálfsögðu alla vitleysingana:)
  • Hlakka til að fara á Hafnarbúðina
  • Hlakka greinilega mest til að fá að borða! hah:)

Ótrúlega margt sem mig hlakkar til, en margt hér líka sem maður á eftir að sakna, eins og t.d. miðbærinn! Ég elska miðbæinn í Árósum, laugarvegurinn og austurstræti eru sko ekki neitt miðað við miðbæinn hér og þetta rólega líf, taka strætó niðrí bæ um helgar og labba um í miðbænum og skoða, það er bara best! Svo náttúrulega krakkarnir og kennararnir sem eru búin að gera skólann svona skemmtilegan:)

 

En jæja, komið gott ..

Saknaðarkveðjur:)

 

María

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 10:58:27 / lattikjatti

Fréttir af baunum

Hvar skal byrja?
Nú er ég búin að vera hér í Danmörku í meira en tvo mánuði og tveir eftir, er samt farin að sakna heimahaganna svoldið mikið! En það eru nú aðeins tveir mánuðir eftir af þessu svo ég tóri þetta nú, Spánarferðin til Lanzarote eftir þannig það verður vonandi eitthvað stuð á þessu liði þar.
Hér er eitthvað af staðnum, en þetta er risa staður með fótboltavelli og nokkra tennisvelli og ég veit ekki hvað og hvað og hvað.
Helgin var ágæt, föstudagurinn var nú bara rugl, þannig ég get ekki sagt mikið um hann, fórum niðrí bæ á BROEN og þar var cult shaker party og ég held ég hafi notið of mikils góðs af því hversu ódýrt var á barnum og var laugardagurinn þessvegna frekar ónýtur hjá mér en aðrir náðu að skemmta sér konunglega í þema party þar sem Strákar áttu að klæðast sem stelpur og stelpur sem strákar, læt myndirnar bara tala sínu máli, þar sem voru teknar um 300 myndir á vélinna hennar Fanneyjar frá þessu kvöldi
Kári og Jón, leita eftir peningum í veskjunum sínum
Bjarki heiti!

Gellur með byssur?
Bjarki og Gústa gamla


Eins og þið sjáið voru strákarnir nú ansi skrautlegir margir hverjir.
Ég hinsvegar fór bara snemma uppí TV stuen, í engu ástandi til þess að fara að skemmta mér neitt meir, þannig ég sagði þetta bara gott um 2 leitið, var svo vakin um 4 leitið af Gústa og Binna með látum og fór þá niður á caféið og horfði á blindfulla fólkið sem var bara of blindfullt þannig ég ákvað bara að fara inní herbergi að sofa.
 
Á morgun hefst svo bara venjuleg skólavika og ég er orðin þreytt! 
 
yfir og út, María 
 
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 08:21:57 / lattikjatti

Ónefnd færsla

Jæja elsku Ísland, ætli ég skelli ekki inn einni færslu! Ég er orðin frekar löt við þetta verð ég að viðurkenna og ástæðan er kanski bara sú að ég nenni þessu bloggveseni ekki lengur, en allavega..

Friends open - Bjarney lét mig vita að hún væri að koma til mín með tveggja daga fyrirvara og svo kom kerlan alla leið frá Íslandi föstudaginn 5. nóvember, við byrjuðum á því að fara út að borða og svo upp í skóla þar sem live caféið var byrjað. Það var bara mjög fínt, síðan seinna um kvöldið ákvað ég nú að skella mér niðrí bæ með henni Bjarney og fleirum sem ég hefði nú bara betur sleppt.. slakasta kvöldið hingað til! Á laugardeginum var svo þetta svaka fína cocktail party, byrjaði með dinner, það var lasanga, haha ekki neitt það besta sem við höfum fengið hér en síðan voru voða fínir drykkir í boði á barnum, við enduðum svo á caféinu og vorum held ég lang síðust til að fara heim að sofa, krotuðum í andlitið á einum dananum sem tók uppá því að drepast þarna inni og svo hljóp hann Emil vinur okkar nektar hlaup í garði skólans þegar litlar fimleika stelpur sem höfðu gist í einni byggingu skólans voru á leið í morgunmat og þetta á ég allt saman á myndbandi.

Síðan leið vikan sem Bjarney var hér hjá mér líka svona hratt en við náðum að gera nóg og Bjarney náði að fylla ferðatöskuna, markmiðinu náð ;)

Um helgina var svo afmæli hjá Bjössa og Jógu, fórum um 26 manns út að borða á Valhalla, þar sem við höfðum farið áður og það var bara mjög fínt, síðan skelltum við okkur yfir á Bridgewater en svo tvístruðust hóparnir og við enduðum á því að fara í smástund á BROEN, vorum síðan heillengi að finna taxa heim, og enduðum eins og svo oft áður að fá far heim með einhverjum innflytjenda!

Nú er í gangi einhver þemavika og ég er búin að vera með hausverk mestmegnis af þessari blessuðu viku, fór á mánudaginn í skotfimi þar sem ég þurfti líka að hlaupa einhverja 8 km og já, hver segir að skotfimi sé auðveld! Í gær fór ég svo að klifra og klifraði upp hálfan vegginn og þá hélt ég að ætlaði að líða yfir mig, þar sem ég er lofthrædd þegar ég stend upp á stól þá getiði kannski ímyndað ykkur hvernig þetta var.

Í dag er svo eitthvað sem kallast thriatlon, átti að synda 400m, hjóla 18 km og hlaupa 4,2 km. En þar sem ég er lasin í dag og búin að vera óendanlega slöpp undanfarna daga og hef bara ekkert langað meira en að komast heim til Íslands þá ákvað ég að reyna bara að sofa þetta úr mér en það gekk ekki betur en svo að ég vaknaði kl 9 og ligg hér uppí rúmi með tölvuna og blogga, en það er nú í lagi hafði svosem ekkert betra að gera.

Ekki búast við því að ég bloggi eitthvað í bráð, komið gott núna.

Sakna ykkar allra! lovelove - María Emilsdóttir


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 11:04:01 / lattikjatti

Algerlega ótitlað blogg.


Hej! Tími til kominn að ég segi ykkur eitthverjar fréttir?

Byrjum á Sletten, á föstudaginn seinasta héldu 100 ferskir krakkar (Sletten á sýna einhverja fallegustu náttúru Danmerkur) krakkar úr Idrætshojskolen í Árosum til Sletten til að komast þangað þurftum við að hjóla ekki meira né minna en 50 km en mínir voru örugglega 80 þar sem að teamleaderinn minn leiddi okkur í gegnum skógi þar sem við þurftum að klöngrast með hjólin upp brekkur og það tók svolítið á skal ég segja ykkur. En þegar á leiðarenda var komið, kom fólk sérr fyrir í húsunum sem við gistum í, spiste sine madpakke og siðan örkuðum við nokkur niður að þessu líka risa vatni, þar sem var ekkert smá fallegt og ákváðum að fara í smá froska og dýraleik, skemmtum okkur bara vel við það.

Ýmislegt var síðan brallað á Sletten, það voru gamlir leikir, adventure race, ratleikur, köku og molagerð, löggu og bófa með eggjum svo eitthvað sé nefnt. Einnig löbbuðum við alla leið uppá Himmelbjerget, hæsta “fjall” Danmerkur og þar sáum við yfir allt, mjög fallegt allt saman. En eftir þessa góðu viku á Sletten var náttúrulega bara Go’weekend.

Nenni nú ekki að segja frá helginni í smáatriðum en caféið var opið og við kíktum líka niðrí bæ, á Broen þar sem ég var svo sniðug að lána herbergisfélaganum mínum skilríkin mín því hun var ekki með mynd á sínu korti en þannig er nú mál með vexti að við erum ekki ögn líkar, þannig kortið var gert upptækt og hún reyndi nu að ljúga því í dyraverðina að þetta væri hún á kortinu en síðan mundi hún bara ekki hvenar hún (eða ég í þessu tilfelli) ætti afmæli þannig kortið mitt er týnt, en mamma ætlar að senda nýtt þannig þetta er allt í góðum málum.

Á mánudaginn var svo haldið til Ollerup, á íþróttadag.

Dagurinn byrjaði hér í skólanum á Samling og þar var einum nemandanum tilkynnt í gegnum síma í miðju samling að pabbi hans hafi látist í vinnuslysi. Okkur var svo tilkynnt það í endann að hann væri á leiðinni heim vegan þessa. Allur skólinn varð hálf daufur við þessa fret og frekar dapurt yfir öllu.

Komum við svo til Ollerup um kvöldið eftir 2 og hálfs tíma akstur og þar var eitthvað samling og kaka svo eitthvað sé nefnt, hjúmangos skóli með rosalega flotta fimleikaaðstöðu sem ég vildi nú endilega fá að prófa þarna um kvöldið, en það endaði ekki betur en svo að ég sneri mig og ökklinn á mér varð í laginu eins og tennisbolti, sem þýddi enginn fótbolti fyrir Maríu daginn eftir.

Ég ætlaði nú samt að vera svakalega hörð og teipa þetta maður, er eitthvað sem teip lagar ekki? En það gekk nú ekki betur en svo að þegar ég kom inná völlinn þá hljóp ég eins og ég væri með eitthvað uppí rassinum. En þrátt fyrir að María væri meidd þá dóu stelpurnar ekki ráðalausar og fóru með sigur af hólmi úr öllum leikjunum.

Úrslitin voru eitthvað á þessa vegu; IHÅ – IHS 13 -1, IHÄ – Ollerup 13-1, svo unnum við 5-0 og 6-2, sem gerði okkur endanlega að sigurvegurum í kvennaflokki í fótbolta og fengum við rosa flottann myndaramma með viðurkenningu inní.

Þegar komið var heim frá Ollerup tók við löng nótt hjá Journalistik teaminu, eða mér, Fanneyju, Peter, Michel, Morten, Ullu, Sebastian, Kasper og einhverri danskri konu sem var að hjálpa okkur að setja saman fréttablaðið. Ég skrifaði grein um kvennafótboltann á ensku og tók svo viðtal við hana Veru.

Kl 05:00 þá var blaðið prentað og eftir þreytta nótt var farið heim, sátt með fréttablaðið og sofið.

Ég er annars bara búin að vera að hvíla ökklann og hlakka til, því engin önnur en frk Bjarney Bjarnadóttir er að koma til mín ekki seinna en á morgun og verður hér í 10 daga og hlakka ég mikið til að fá elsku krúttið til mín. Hún verður hér yfir Friends open helgina og eru krakkarnir strax farnir að fá gesti til sín, en ég held þetta verði voða gaman.

Annars ætla ég að segja þetta gott núna og henda inn tvemur myndum með þessu.

 

Hluti af Vatninu, rosa fallegt.

Uppá Himmelbjerget, sjáiði Maríu einhversstaðar??

 

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 14:06:54 / lattikjatti

kom dáldið uppá...

 

Að fara til Dk að heimsækja Maríu

 

og ég á pott þétt eftir að villast í lestinni

 

kveðja

Bjarney

ps. minni á niðurtalningarnar hér til hliðar..

ps2. María viltu setja þína niðurtalningu til Kanarí líka 8);)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 14:15:46 / lattikjatti

ein að fara til Kína....

Beijing! here I come!  

Beijing skyline 

ég er að fara til Kína :!::!: :D

Ætlaði bara að láta ykkur vita :D

 

Ætla að skoða The great wall eða KÍNAMÚRINN :D

bæbæ


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 10:25:24 / lattikjatti

"Í hvert skipti sem ég sé þessa mynd þá fær hún mig til að brosa"

BLOGG?

 

Jæja, hvar á ég nú að byrja?

 

Síðan ég bloggaði seinast hefur örugglega margt gerst en ég nenni nú ekki að rifja það allt saman upp hér.

 

Fótboltaæfingar, blakmót, æfingar með VIK, lyftingar og eitt stykki fótboltaleikur er það sem hefur svona einkennt seinustu viku, fyrir utan svo náttúrulega seinustu helgi sem var bara skemmtileg.

 Á föstudeginum fórum við niðrí bæ, fyrst á Bridgewater þar sem fólk hellti í sig, þar sem áfengið þar er fáránlega ódýrt.

Síðan var haldið í dansstemminguna á BROEN.

Á laugardeginum var caféið opið, skellti ég mér að sjálfsögðu þangað en endaði svo af einhverjum ástæðum niðrí bæ með nokkrum krökkum úr skólanum og týndi Fanneyju.

Fann hana svo loksins fyrir utan Seven-eleven, en hun ætlaði sko bara að labba heim.

ÉG HÉLT NÚ EKKI.  – hér eru einhverjar myndir á myndasíðunni hennar Fanneyjar frá þessari helgi – http://public.fotki.com/fanneymagg

 

Kepptum síðan æfingaleik á miðvikudaginn á móti gömlum nemendum sem voru búnar að smala saman í lið. Við unnum að sjálfsögðu, 4-2 og var ég látin spila hægri bak, sem er nú allveg nýtt fyrir mér. En það var samt mjög gaman.  

 

Um þessa helgi var síðan home going weekend og mjög margir af dönsku krökkunum  eru farnir heim, einnig nokkrir íslendingar sem ákváðu að skella sér í Tivoli til Köben en ég ákvað nú bara að vera sem rólegust hér í Árhús.

Caféið var svo opið í gær þar sem það var bara frí hjá okkur í dag, ekkert spring og sprint eða neitt.

Tókum svo businn í gær niðrí bæ ásamt öðrum skóla sem var hér í gistingu og settumst inná Bridgewater og vorum þar í einhvern tíma. Þar var einhver live tónlist, mjög fínt.  Svo var ég bara komin hingað heim kl 2 eftir eitthvað smá ráp niðrí bæ.

Á morgun er svo heljarinnar party hér, einhverjir 50 old students að koma hingað og verða með reunion og við tökum af sjálfsögðu þátt í því. Það verður einhver svaka dinner og fínheit.

 

Á mánudaginn verður svo haldið til Sletten, hjólað 50 km og er ég að fara að taka þátt í einhverskonar smiðjum sem ég veit bara EKKERT hvað snúast um, en þetta verður örugglega gaman og erfitt. En annars, þá ætla ég að segja þetta gott núna í bili.

 

Venlig hilsen  - María!

 

P.S – verð að segja hér smá sögu.

 

Mamma fór með tölvuna sína í viðgerð og það var mynd af mér á desktopinu þar sem ég var á leið í fluginu til Danmerkur og það var einhver ungur strákur að afgreiða hana og segir svo alltí einu, HEY flott mynd og fer að spurja hver ég væri og svo framvegis og mamma segir honum það.

Síðan þarf að slökkva og kveikja á tölvunni tvisvar og strákurinn segir svo;

 

Í hvert skipti sem ég sé þessa mynd þá fær hún mig bara til að brosa.

 

Já ég veit, ég hló líka.:lol:


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 11:07:45 / lattikjatti

..............

 

 

Já hún María okkar á afmæli alla daga!

lítið að fretta

for a solon i gær og hitti nokkra ! takk fyrir það... verðum að endurtaka þetta :)

hvar var Johann helgi? 8|

for a chris lake seinustu helgi ásamt helgu, lilju og karí

og endaði það ömurlega fyrir utan nordica hotel að biða eftir jóhanni sem var að bíða eftir óla sem var að bíða eftir sindra sem var inní fangaklefa að bíða eftir einhverjum til að bjarga sér! :klikk:

for i party til röggu og niðri bæ þar seinustu helgi

for i handb. party þar þar seinustu helgi og niðrí bæ,, (gerði stærstu mistök í heimi)

alla hina dagana hef eg verið i skolanum, isf, nuddi og ljosum

er að fara heim á morgun, fekk skemmtilegt símtal frá pabba

hann; ertu að ´spa í að koma

ég; ja a morgun

hann; nei viltu nokkuð vera að þvi

ja honum langar nu mikið að fa mig í heimsókn!!!!

oke þetta blogg átti að vera ein setning,,

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Bjarney fer til Germany
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1560 dögum